Thursday, January 1, 2015

Dagur 1- fall er fararheill

Ég ákvað það í gær þegar ég sat og horfði á áramótaskaupið að ég ætti svo sannarlega að halda áfram að blogga og endilega halda "Kuldaskræfu í kjól" þemanu á lofti núna 3ja árið í röð!

Mér hefur stundum fundist ég þurfa að vera "eitthvað" til þess að geta bloggað- vera trendsetter, tískudíva, ógeðslega sniðug eða hrikalega fyndinn. Ég er ekkert af þessu en ég er samt alveg hellingur: mamma, eiginkona, vinkona, hjúkka, bóndi, prjónari, heklari, kjólaáhugamanneskja, útivistarglöð o.s.frv o.s.frv. Svo er ég líka bara talsvert venjuleg- finnst gott að vera heima hjá mér og fer stundum leiðinlega snemma að sofa.

Ég ákvað því að ég þurfi ekkert að skilgreina mig- ég er bara svona venjuleg og blogga þegar ég nenni!

Þessi fyrsti dagur ársins byrjaði þó ekki vel, áður en nýja árið gekk í garð var ég farin að finna fyrir mígreni sem lítið gerði annað en að ágerast. Deginum hef ég eytt í myrkvuðu herbergi með ælufötu mér við hlið….

Ég náði þó að reisa mig aðeins við og skrapp yfir til tengdó og matbjó örlítið til að bæta við afganga frá kvöldinu áður, Eva mágkona mín var svo góð að hjálpa mér í þeim ásetningi að kalla síðu svörtu peysuna mína kjól og því þótti tækifæri til að smella af einni mynd:

Það er nú kannski bara ágætt að byrja mánuðinn á einni svona mynd þar sem að hér eftir verður "selfí" í forstofuspeglinum alveg hreint stórfín!

Kjóllinn: er í raun síð svört þykk peysa frá COS
Sjal: prjónaði ég sjálf!
Sólgleraugun: eru bestu kaup ársins 2014 og bjarga mér á svona erfiðum dögum- Rayban

Eftir þetta lagðist ég aftur í rúmið en hef nú risið við aftur og vonast til að heilsan sé að ná mér.

Nýársheillaóskir

Heiða

1 comment:

  1. Ray banin er besta gjöf okkar mígrenisjúklinganna! Þau hafa leyft mèr að upplifa sumar og sólskin án myrkurs og ælufötu mèr við hlið. Haltu áfram að blogga, gaman að heyra frá ykkur ,,venjulega" fólkinu ;)

    ReplyDelete