Friday, January 2, 2015

Dagur 2

Það gekk ansi erfiðlega að koma mér út úr mígrenikastinu í þetta skipti og það var ekki fyrr en með aðstoð læknis og hálfgerðrar svæfingar sem að ég er nú komin til lífs á ný!

Þegar ég var vöknuð núna seinnipartinn ákvað ég að læðast í sturtu og skellti mér svo í þykkar og hlýjar gammosíur og þægilegan kjól. Ég er svo að vonast til þess að geta bara tekið því rólega með prjónana mína í kvöld og komist þannig hægt og rólega aftur til sjálfs míns. Ég verð orkulaus líkt og eftir langhlaup eftir svona verkjakast.

Kjóll dagsins:





Kjóll: Modcloth- bolurinn er áfastur kjólnum, þó þetta líti svolítið út eins og pils og bolur. Pilsið er fallega sinnepsgult sem kemur vel út við hvítu og svörtu rendurnar.

Gammosíur: Risastórar og mjög þykkar- keyptar í Primark

Baugar: í boði mígrenis!

Góðar stundir!
Heiða

No comments:

Post a Comment