Ég er orðin spennt fyrir nýja árinu, búin að setja mér áramótaheitin sem eru ansi stórtæk þetta árið. Hver veit nema ég uppýsi þau við tækifæri. Ég set mér alltaf áramótaheit og hef undanfarin mörg ár líka allltaf staðið við þau- yfirleitt er ég að ögra sjálfri mér með þessum heitum. Þetta árið sem er að líða voru heitin á prjónanótum- prjóna peysu frá toppi og niður, prjóna flókið sjal og læra að fylgja semi- erfiðum uppskriftum á erlendu tungumáli. Allt tókst þetta :)
Ég var að enda við að skrá mig í samprjón sem hefst í janúar- er að hugsa um að prjóna "heimferðarpeysu" á mig í stíl við heimferðarsett bumbubúans!
Af öllum þeim samskiptamiðlum sem í boði eru þá er ég virkust á Instagram og var að hugsa um að deila með ykkur instagram myndunum mínum undanfarnar vikur:
Mission "prjónað á barnið"- þetta er nú þegar orðið að fullkláruðum ofurkrúttuðum buxum!
Ég upplifði mig örlítið eins og sigurvegara eftir einn góðan vinnudag þar sem ég hafði fyrst farið á ótal bæji í heimahjúkrun og gefið fólki jólabað og kom svo heim og skrúbbaði húsið.
Þær eru svo mikil dásemd þessar dætur mínar!
Þetta er besti tími dagsins- lestrarstundin okkar á kvöldin. Eftir jólin eigum við líka svo margar nýjar bækur að skoða!
Ég fékk þetta skilti í jólagjöf- þetta er heilagur sannleikur!
Síðar…
HP
No comments:
Post a Comment