Ég er enn að telja í mig kjark að hafa kjólaþema í janúar- það yrði þá 3ja árið sem "Kuldaskræfa í kjól" fer í loftið. Það eru nokkur svona atriði með og á móti:
Með:
Ég hef eignast fullt af nýjum kjólum á árinu og það væri næstum synd að deila þeim ekki með öðrum kjólaunnendum. (Vandræðalega margir þeirra eru þó með blómamunstri)
Ég ætti talsverðan séns í að verða fín og sæt flesta daga í þessum fyrsta mánuði ársins
Það gæti verið gaman að fylgjast með vaxandi bumbu á hverjum degi á mánuð- það er nú ekki í hverjum mánuði sem það þykir gott mál að vömbin vaxi dag frá degi!
Móti:
Nenna- þ.e.a.s skortur á henni
Ljósmyndun- ég mun ekki hafa aðgang að ljósmyndara líkt og síðast sem tekur þemað vissulega niður um nokkur level. "Selfie" í forstofuspeglinum heima hjá mér gæti orðið ansi þreytt.
Líkurnar á því að ég upplifi mig eins og hval með áðurnefndu vaxandi vömbina eru talsverðar og ég því e.f.t.v. illa stemmd í myndatöku
Endum þetta á kjólamynd- en ekki hvað!
27 vikna jólabumba á aðfangadagskvöld.
Á morgun kemur svo meira…já á morgun segji ég!!
HP
No comments:
Post a Comment