Ég uppgötvaði að ég hef ekki sett hér inn myndir af peysunni sem ég kláraði að prjóna handa mér í haust:
Uppskriftin heitir Arvingen og hana keypti ég á Ravelry.
Ég notaði 3ja þráða Snældu sem ég keypti í Litlu prjónabúðinni.
Þetta er fyrsta peysan sem ég prjóna ofan frá og niður og mér fannst það virkilega skemmtilegt, mér finnst fátt leiðinlegra en að lykkja saman undir höndum og þess vegna hentar þessi aðferð mér afar vel.
Ég hef svo verið í smá Stephen West maraþoni. Var að klára að prjóna sjalið "Samen" eftir hann- ætla að ganga frá endum og skola úr því áður en ég mynda það. Núna er ég svo að taka þátt í leyniprjóni sem Stephen West er með í gangi, ég er reyndar aðeins á eftir í því en það er allt í lagi því ég veit ég mun klára þar sem þeta er svo stórskemmtilegt!
Í lokin skelli ég svo inn smá myndum af "Bumbu í kjól"- ég ætla að reyna að vera dugleg að taka kjólamyndir af þessari bumbu. Stefni ekki á frekari barneignir þannig að það er eins gott að reyna að njóta …það verður ekkert jafn gaman að taka myndir af mannvistarleyfunum sem eiga eftir að sitja á kviðnum í einhverntíma á eftir ;)
Bumba 19 vikur
Blóma-Bumba 20 vikur +
Við fjölskyldan fórum í helgarferð til Amsterdam um síðustu helgi og þar fann ég búð sem selur kjóla og pils sem hugsanlega hafa verið gerð akkurat eftir mínu höfði- endalaust af blómamynstri og fallegum litum. Ég á núna nokkrar ( *hósthóst* aðeins of margar) flíkur þaðan og verð því skrautleg líkt og jólatré á næstunni!
HP


No comments:
Post a Comment