Tuesday, November 18, 2014

Jólagleði...

Ég hef áður sagt frá því hér hversu lítil jólamanneskja ég er- oft sagt að ég hefði lítið á móti því að eyða jólunum á ströndinni á Kanarí fjarri öllum hefðum og venjum.
En nú er einhver umbreyting á minni.... The Grinch is feeling like Christmas!
Ég er byrjuð að skreyta oggupoggu, búin að kaupa ljósastjörnur í gluggana ( sem á reyndar eftir að setja upp og tendra þar sem það fylgdu víst engar perur í pakkanum!)
Svo er ég almennt í jólalegu skapi, ætla að verða eins og þessar konur sem hafa alltaf farið svo í taugarnar á mér á þessum árstíma: Böðuð seríuljóma og angandi af piparkökulykt :)

Annars er gaman að segja frá því að mér líður eins og ég hafi stórgrætt. Hvað græddi ég?
-Jú ég græddi tíma.
Dætrum mínum finnst grjónagrautur vera hinn allra besti matur og hann er því á borðum einu sinnu í viku, það tekur klukkutíma að standa yfir pottinum og hræra til að ekki brenni við. En með því að nota þessa snilldaraðferð þá bara skella innihaldsefnum í pott og 1 og 1/2  tíma seinna er grauturinn klár. Ég get svo sannarlega notað þennan "hrærípotti" klukkutíma í margt annað skemmtilegra.

Nokkrar myndir frá undanförnum dögum:


Ætli nútímalegasta slangrið yfir þessar væri ekki "retro cupcakes"- Mér finnst gamla góða muffinsuppskriftin alltaf best.

Við fengum að kíkja á krílið í 20v sónar á dögunum- vildum alls ekki fá að vita kynið og bíðum spennt fram að fæðingu eftir því.

Ég er að taka þátt í leyniprjónsverkefni á vefnum- hér má sjá sjalið sem ég er að gera eftir vísbendingu nr 1

21v bumba í kjól ( eða sko reyndar pilsi)


Jólakósý

HP

No comments:

Post a Comment