Friday, October 24, 2014

Áframhald….

Það fór ekki alveg svo að mikið líf yrði hér strax eftir síðustu færslu líkt og ég hafði áætlað. Lífið sem er að byrja að vaxa og dafna í bumbunni á mér hefur nefnilega tekið alla þá aukaorku sem ég hef til handa. Þannig að þegar að vinnu, heimilis og mömmustörfum er lokið þá hef ég mikið til bara farið að sofa!
Ég hef lítið klætt mig í kjól, varla tekið nokkra mynd og aðeins tekið í nokkrar lykkjur í prjónaskapnum.
Það skal þó koma fram að ég er ekkert veik og á ekkert bágt, þessi meðganga virðist bara ætla að taka aðeins meira á en þær síðustu ( enda fann ég ekki fyrir þeim). Ég ætla bara að sætta mig við að hafa lánað líkamann minn til þessa verkefnis í nokkra mánuði og reyna að hugsa eins vel um hann og ég get.

Ég skellti mér í Paradís norðursins a.k.a Dalvík um síðustu helgi til að vera viðstödd brúðkaup hjá vinkonu minni. Þar hitti ég stóran hluta vinkvennahópsins og þvílík lífsins lukka sem það er að eiga svona dásamlegar vinkonur- þær eru fáránlega skemmtilegar, klárar, fyndnar og fallegar! ( Hugsanlega er þessi meðganga að gera mig væmna… kannski verð ég farin að æla regnbogum á 8 mánuði?)

Endum þetta á nokkrum myndum og engum loforðum um dugnað á næstunni….

Þegar ég fer norður finnst mér alveg nauðsynlegt að kíkja aðeins austur á sand til að sjá almennilega til sjávar og anda að mér ferska loftinu




Þetta er hún Telma ein af hinum frábæru vinkonum mínum, við heimsóttum hina verðandi brúður rétt áður en haldið var til kirkju og móðir brúðarinn bauð upp á kaffi og grand til að róa taugarnar :)


Þetta var tilefni til að taka kjóla-bumbumynd. Bumban er reyndar eiginlega ekki orðin svona stór, meira svona reyndi ég að trana henni fram til að það liti ekki bara út fyrir að ég hefði fitnað svona í fína kjólinn minn. ( sem eftir á að hyggja hefur örugglega ekki nokkur maður verið að velta sér uppúr!)

Síðar
HP

No comments:

Post a Comment