Monday, December 8, 2014

Lífið

Eitthvað fær litla bloggið mitt skerta athygli af minni hálfu þessa dagana. Það hefur afskaplega lítill andi verið yfir mér en ég vona nú að það fari að breytast.

Bumbubúinn blómstrar… hýsillinn ekki alveg jafn mikið þar sem járnskortur, ælupest, æðahnútar og almenn leiðindi hafa verið að gera vart við sig- ég hef það nú samt bara nokkuð gott þrátt fyrir einstöku skapvonskuköst!  (Ætli eiginmanninum sé ekki meiri vorkunn en mér að þurfa að búa með mér þessa dagana?)

Það er sérlega gaman að klæða þessa bumbu í blómakjóla og þessi er alveg splunkunýr! 23v+

Það er ef til vill til að gleðja dygga lesendur að hugmyndin um þema- janúar hefur ekki verið slegin útaf borðinu og það er aldrei að vita hvað mér dettur í hug! Kuldaskræfa í kjól kemur þar sterkt inn- eða kannski það ætti bara að taka meðgöngugleðina alla leið og hafa það eitthvað því tengt?

Ég hef verið nokkuð dugleg að prjóna og kláraði 2 sjöl eftir hönnuðinn Stephen West:

Þetta sjal var gert í svokölluðu leyniprjóni, þar sem uppskriftin kom smám saman fram í 4 vísbendingum. Ég var ansi nálægt því að missa geðheilsuna við þetta verk þar sem upprakningar eru ekki minn tebolli….


Þetta sjal ætla ég að eiga sjálf og er ansi hreint ánægð með útkomuna!

Hitt sjalið sem ég var að klára er afmælisgjöf til mágkonu minnar og ég er nokkuð viss um að það muni fara henni afskaplega vel- risastórt og mjúkt:



Meira síðar mín kæru….
HP

2 comments:

  1. Vá æðislegt sjal, bumba og LILJA! :)

    ReplyDelete
  2. Bjarnvieg IngvadóttirDecember 8, 2014 at 11:21 PM

    Mig langar í svona sjal eins og þitt, má samt alveg vera í öðrum litum.

    ReplyDelete