Monday, July 21, 2014

Prjónagleði

Ég hef nú áður komið að því hversu lengi ég er að prjóna- eiginlega skil ég ekki alveg hvernig ég sem alltaf vill gera allt strax og helst hundrað hluti í einu nenni að standa í þessu. Hugsanlega er ég samt svona lengi að prjóna af því að ég er að gera hundrað aðra hluti á sama tíma? Ég ætti að taka það til umhugsunar.
Það vill því svo heppilega til að mér og mínum er oft fært eitthvað fallegt handverk.

Mamma mín prjónaði fyrir mig ungbarnasett þvi mig langaði svo til að færa einni pínulítilli nýfæddri stúlku eitthvað hlýtt og fallegt:



En það var ekki bara sú litla sem datt i lukkupottinn-
PrinsSkessurnar tvær fengu útgáfur af krummapeysunni sem er svo vinsæl um þessar mundir:



Dásamlegar skessurnar mínar!

HP


No comments:

Post a Comment