Það hefur vart farið framhjá neinum á þessu skeri að það rignir og rignir og rignir! Það jákvæða við allt þetta úrhelli er að það er svo góð afsökun fyrir því að sitja lengur við og prjóna.
Þeir sem hafa fylgst með myndum frá mér undanfarna 10-11 vikur hafa oft séð bregða fyrir bláröndóttu prjónlesi- sem nú loksins er orðið að fullkláruðu sjali :)
Ég er stjarnfræðilega lengi að prjóna og hélt því á tíma að ég yrði með þetta í vinnslu langt fram á efri ár...
Uppskrift: Brolly ( úr smiðju Pompom)
Garn: Ull frá Geilsk sem ég fékk í Litlu prjónabúðinni
Ég setti mér nokkur prjónaáramótaheit síðastliðin áramót og með þessu fullkláraða sjali get ég hakað við: "prjóna fínlegt sjal eftir erlendri uppskrift" á heitalistanum.
Í kvöld fitjaði ég svo upp á næsta áramótaheiti... sýni ykkur það í mótun bráðlega.
HP
úff þú ættir að vita prjónahraða annarra, ef þér þykir þú prjóna hægt!!!
ReplyDeleteVá geggjað!
ReplyDeleteÞað er æðislegt, Heiða! Til hamingju með klárið!
ReplyDelete