Wednesday, July 23, 2014

Handavinnuklár

Það kom að því að eitthvað af öllum verkefnunum sem ég var með á prjónunum/nálinni yrði að fullkláruðum verkefnum.
Það rignir niður litlum börnum i kringum mig sem gleður svo sannarlega- mér finnst það alltaf jafn mikið kraftaverk að geta komið lítilli mannveru í heiminn!

Ég er búin að gefa nokkur hekluð barnateppi þetta vorið og í gær fóru 2 í viðbót í póstinn. Reyndar vantar mig myndir af einu teppinu sem ég gerði og gaf í vor- það er ansi góð afsökun fyrir því í að skreppa í heimsókn og fá að knúsa svolítið litla prinsessu og smella af henni myndum.


Myndirnar eru ekki þær allra bestu í þetta skiptið þar sem hann virðist bara alls ekki ætla að hætta að rigna og lítið svigrúm til útimyndatöku:



Ölduteppið eftir uppskrift úr Þóru heklbók
Gert úr kambgarni á nál nr 4.0



Það var alveg einstaklega gaman að hekla þetta teppi og ég ætla að gera fleiri svona.
Uppskrift: Flowers in the snow
Gert úr kambgarni á nál nr 3.5

Þessi dásemd fór svo líka á pósthúsið í dag þar sem því er ætlað að ylja góðri vinkonu :)

Annars er það helst í fréttum að ég er komin í kærkomið sumarfrí og við fjölskyldan erum að leggja af stað í gönguferð á Strandirnar þar sem við ætlum að njóta þess að vera saman og ganga um fjöll og firði.

HP

1 comment:

  1. Teppin eru æðisleg hjá þér, Heiða.
    Ég er einmitt að hugsa um að gera Flowers in the snow teppi við tækifæri. Finnst þau svo dásamlega falleg.

    ReplyDelete