Ferðalagið okkar á Strandirnar var algjörlega dásamlegt.
Adda Sóley ætlar núna að verða göngukona þegar að hún verður stór- það er sko margt skemmtilegt sem lærist í Ferðafélagi barnanna!
Ég nældi mér reyndar í hundleiðinlega pest síðasta daginn og fékk háan hita, hor og hósta í alveg heila viku og rétt núna að ná mér. Ég get reyndar aðeins kennt sjálfri mér um hveru lengi þetta hékk í mér því ég vitaskuld fór fram úr mér og alltof snemma af stað eftir svona mikla flensu.
Ég gæti sett inn hundrað myndir frá ferðalaginu okkar... mig langaði að stoppa bílinn á 100 metra fresti til að taka myndir af náttúrufegurðinni á Vestfjörðum!
Fyrsta nestispásan var í Paradísarlaut
Einn af mörgum stoppistöðum á Ströndum
Veðrið lék við okkur
Fjaran var vinsæll leikstaður
Fallega stóra stelpan hennar mömmu sinnar
Við fórum margar ferðir í Krossaneslaug
Fórum í fjallgöngur
Spiluðum golf útí sjó
Fórum á Brennu
Já þetta var dásemdarferðalag sem fjölskyldan naut í botn :)
Meira síðar
HP





No comments:
Post a Comment