Friday, March 14, 2014

Virðing

Ég er mikil áhugamanneskja um samskipti- góð samskipti.

Ég hef vafrað talsvert um veraldarvefinn undanfarin misseri og hefur beinlínis stundum orðið flökurt að sjá það sem fólk lætur frá sér í rituðu máli á vefnum. Blótsyrði, hótanir, innistæðulausar fullyrðingar, sorakjaftur og svo mætti lengi telja.
Núna les þetta kannski einhver og heldur að ég sé e.t.v. svo vitlaus að í barnslegri einlægni minni telji ég að öll dýrin í skóginum geti alltaf verið vinir. Nei svo tel ég ekki vera. En hvað varð um það að bera virðingu hvert fyrir öðru? Gagnrýn hugsun og umræða er alltaf af hinu góða- það að geta gagnrýnt sjálfan sig og aðra, hugmyndir og stefnur á málefnalegan hátt.

Ég gleymi seint þeim degi þegar ég óx upp úr áðurnefndu barnslegu einlægninni. Ég var rétt rúmlega tvítug og eyddi talsverðum tíma í stórum hóp fullorðinna einstaklinga. Menntaskólanáminu var lokið ég átti von á barni og taldi mig tilbúna að takast á við fullorðinsárin. Kurteisi, réttsýni, heiðarleiki, virðing við náungann og gott dass af kærleika þegar við á- allt þetta hafði mér verið kennt og að slíkt ætti að hafa að leiðarljósi á lífsgöngunni. Já þennan dag gerði ég mér það ljóst að þetta átti því miður ekki við, ég sem var svo tílbúin í þennan heim. Heim fullorðinna einstaklinga, þið vitið- þessara sem mega ráða sér sjálf.

Það er hægt að eiga góð samskipti um annars erfið og leiðinleg mál- slík samskipti einkennast af virðingu. Við erum fyrirmyndir komandi framtíðar- er sorakjaftur á veraldarvefnum virkilega það sem við viljum að einkenni okkur í sögubókum framtíðarinnar?

HP

No comments:

Post a Comment