Monday, March 17, 2014

100 hamingjudagar

Hamingjuna má svo sannarlega finna á hverjum degi- ef maður bara aðeins horfir í kringum sig.
Ég var alltaf að lofa systur minni að fara að vera virk á instagram- við búum langt frá hver annarri og deiling mynda er því alltaf sérstaklega skemmtileg fyrir okkur.
Núna ákvað ég að taka þátt í þessu skemmtilega 100 happydays verkefni á instagram. Ein mynd á dag í 100 daga.

Dagur 1:
Hér var mamman að jafna sig eftir mígrenikast og ægilega gott að fá knús frá þessum tveim

Dagur 2:
Mætt í vinnu, einstaklega ánægjulegt að hafa jafnað sig á höfuðverknum og komast í vinnu.

Dagur 3:
Mæðgur að hafa sig til í háttinn

Dagur 4:
Bauð góðri vinkonu á Sushi-deit.

Dagur 5:
Mæðgur að lesa fyrir svefninn :)

HP

1 comment:

  1. Mér finnst líka voðalega gaman að fylgjast með myndum af ykkar fallegu fésum ;)
    Ást, Lára

    ReplyDelete