Monday, November 18, 2013

Samtalið...

Þegar ég kom heim frá Hollandi á dögunum varð ég vitni af ansi merkilegum samræðum í flugvélinni.
Eins og ég hef áður komið inná þá var flugferðin erfið og eftir að vélin lenti þurftum við að sitja úti í vél í góðan klukkutíma á meðan beðið var eftir veðrið myndi lægja.

Fyrir framan mig sitja bandarísk hjón á miðjum aldri sem ég hafði örlítð rætt við í upphafi flugferðar en eftir að við lendum þá eru þau í hrókasamræðum við íslenskan mann sem sat fyrir framan þau.

Maðurinn: What do you guys do?
Hjónin: We are both lawyers
Maðurinn: Yes..my wife is a lawyer. She works for the Icelandic bank industry- have you heard of it? 
Hjónin: Yes I mainly represent banks (the husband)
Maðurinn: Ok, that´s why you fly on Saga Class like I always do. We have loads of cash.

Þarna var ég farin að flissa... en það besta var eftir:

Maðurinn: How did you like Amsterdam, did you do any sightseeing?
Hjónin: We only stopped there 36 hours, but this morning we walked around the red district and looked at the pore prostitutes in the windows. We were suprised to see how many of them were ugly.
But it was also so strange to have the smell of drugs and weed/cannabis in the air everywhere.
Maðurinn: Yes, we Icelanders don´t have to go to Amsterdam to get  weed. We can get it so cheap in Iceland because we grow it here in the greenhouses!

Ég prísaði mig sæla yfir því að hafa ekki áður í mínum stuttu samræðum við hjónin komið inn á það að ég ætti nokkur gróðurhús!


HP

3 comments:

  1. jiiii ertu ekki að grínast!.. hahahaha, hefði líka viljað vita hver þessi íslenski pappakassi er :) En annað..flaugst þú á Saga class?

    ReplyDelete
  2. Nei ég flaug ekki á Saga class.... Enda vinn ég ekki fyrir banka ;) Ég sat fremst í vélinni í röðinni fyrir framan Saga Class.

    ReplyDelete
  3. Hahahahahahahaha priceless!

    ReplyDelete