Bloggið hefur þó ekki það hlutverk að vera einhver sýndarveruleiki á lífi mínu...þó hef ég meira gaman af því að setja hér inn það góða og fallega sem er að gerast í kringum mig.
Myndirnar sem ég sýni ykkur hér á eftir gætu t.d. látið ykkur halda ég sé búin að vera ofboðslega dugleg að skreyta heimilið, sinna börnunum og gera mig sæta:
Fór á Bingó með frumburðinum. Sannleikurinn er þó sá að ég hafði í rauninni engan tíma í þetta blessaða bingó heldur þurfti svo að vaka fram á nótt við verkefnagerð!
Tók mynd af hinum nýju fínu skónum mínum frá Amsterdam... þarna var ég samt á læknabiðstofu og tók myndir af skónum mínum á einn síma meðan ég vann í hinum við að panta vörur fyrir vinnuna. Komst svo að því að það má ekki nota síma á biðstofunni- hvað þá tvo í einu!
Setti upp perlujólatré með stelpunum í hreina og fína húsinu mínu. En sjáiði til...eiginmaðurinn á allan heiðurinn af hreina húsinu og kátu stelpunum í þetta skiptið því móðirinn vann 12 tíma á dag um helgina og reyndi því að vinna upp móðurlegt afskiptaleysi með 30 mín af listsköpun og skreytingum!
Ég tók mér svo tíma í vinnunni til að taka speglamyndir af sjálfri mér..einfaldlega af því mér fannst ég svo fín í þessum blóma kímono!
Nokkrum dögum seinna var ég ekki eins fín í vinnunni...með rauðan varalit sem bæði náði langt út á kinn og var fastur í tönnunum á mér
Það hefur svo sannarlega allt sýna kosti og galla
Með og án glans!
HP



Enda er lífið ekkert "glans" heldur bara svona allt mögulegt, skemmtilegt og leiðinlegt, erfitt og létt.
ReplyDeleteOg þó ég sé langt komin með að skreyta fyrir jólin er ég ekkert að stressa mig á ryki í hornum og skítugum skápum.
Geri bara það sem mér finnst gaman eftir því sem ég hef tíma til.
Kv.
Bjarnveig
Bjarnveig
Hahaha snilldar færsla..lovjú
ReplyDelete