Tuesday, November 12, 2013

Ný klæði

Það fór nú ekki svo að ég kæmi fatalaus heim frá Amsterdam. Ég tel mig hafa náð að versla einstaklega fallegar flíkur þar núna á annars mjög stuttum tíma sem eytt var á búðarrápi. Ég vissi nákvæmlega í hvaða búðir ég vildi fara og að hverju ég væri að leyti, fór merkilega lítið útaf þeim lista.

Trefill: Verndarhendur- Vík Prjónsdóttir
Kápa: Zara
Sokkabuxur: HogM
Skór: Ecco

Ég mátaði nokkrar klassískar svartar kápur úti. Sú fyrsta sem ég mátaði var þessi úr Zöru, ég endaði svo  á henni líka. Sokkabuxurnar eru fallega bláar og passa því vel með þessum skóm úr smiðju ECCO- þeir eru ótrúlega þægilegir og flottir ( ég er ekki alltaf hrifin af útlitinu á ECCO skóm- en þessir eru æði!)

Þessi mynd sýnir litina betur
Svo fínir...

Kjóll: COS

Kjóllin er með svona "see through" detail við hálsmálið. Hann er víður í sniðinu ( sem er gott því ég er of löt til að finnast ég vera mjó þessa dagana!)
Kjólinn er úr velúr efni af framan en hálfgerðu jogging efni að aftan-einstaklega þægilegur.

HP

No comments:

Post a Comment