Monday, November 11, 2013

Súperkonan?

Lentum í Keflavík- eftir flugferð sem ég efaðist á tímibili stórlega um að ég myndi lifa af!
Flugvélin hristist og skalf og lenti í rassaköstum á flugbrautinni, farþegarnir hrópuðu og klöppuðu af gleði- Ég var bara með ekka eftir að hafa grátið í 30 mín á hringsóli yfir suðurnesjunum!
Í nokkra klukkutíma var ég ákveðin í því að um leið og ég kæmist heim myndi ég aldrei fara þaðan aftur, ekki einu sinni á bíl....og börnin mín fengju ekkert að fara. Aldrei.

Seinnipartinn í dag er ég þó á leið til Þýskalands eftir nokkrar vikur.

Ég var full af orku í morgun eftir útlandadvölina. Tilbúin að massa vinnuna, þrífa heimilið, þvo fjallið, læra-læra-læra, elda hollan og spennandi mat og vera fyrirmyndarmamma.

Ég komst nú skammlaust úr vinnunni án þess að gera nokkurn skandal og gerði mér góðar væntingar um restina af fyrirætlunum mínum:
Tók út fiskinn í kvöldmatinn sem reyndist anga af slorlykt. Ákvað að gefast samt ekki upp á góða matnum sem ég ætlaði að gera og gerði tilraun til að elda "makkarónur með osti". Þær voru ekki góðar. Ég náði samt að snúa eldhúsinu á hvolf.
Dæturnar vildu ekki borða vondu makkarónurnar í skítuga eldhúsinu. Þær fengu að fara í tölvuna og fengu kex áður en þær fóru að sofa!

Lærdómurinn gekk illa og ég er að spá í taka ekkert úr þvottavélinni áður en ég skríð upp í rúm...

....kannski á morgun.

HP

No comments:

Post a Comment