Ég er engin jólamanneskja og finn mig afskaplega lítið í þessum árstíma, held stundum að ef ég ætti ekki börn þá myndi ég sleppa því að halda jól.....
En ekki misskilja mig: Mér líður ekkert illa á þessum árstíma nema kannski agnarögn þegar ég verð uppfull af öfundsýki út í fellow mæður/skvísur sem algjörlega ljóma á þessum tíma- afslappaðar, síkátar, skreyttar, baðaðar seríuljóma og angandi af nýbökuðum piparkökum.
Í dag gerði ég tilraun til jólakósý á heimilinu og náði í jólaskrautskassana upp á loft. Korteri seinna var búið að ná að láta rafmagns syngjandi sveinka dilla rassinum og raula "Jingle bells" að mér fannst 1000 sinnum, brjóta 1 stk jólastyttu og dreifa jólaskrauti um allt húsið.
Ég hef eytt restinni af deginum í að upphugsa hernaðaráætlun um hvernig telja eigi eiginmanninum trú um að sólarlandaferð í desember sé málið!
Mér finnst alveg sumt við þetta skemmtilegra en annað- jólakjólinn er gott dæmi um það !
Þennan desembermánuðinn er ég þó að fara til Þýskalands og hlakka sérstaklega til að heimsækja jólamarkaði sem mér skilst að séu einstakir þar. Geri mér vonir um að þar sé hægt að fá billegt jólaskap..eða a.m.k eitthvað sterkt oní kakóbollan ;)
Það fór illa fyrir þessum
Aðventuljósin eru þó alltaf kósý...
HP


No comments:
Post a Comment