Sunday, October 13, 2013

Sunnudagur

Mætt til leiks á ný!
Ég hef verið ansi upptekin eftir að ég kom frá Noregi og ekki gefist neinn tími til að sinna blogginu. Fann þá hjá mér einhvern söknuð í bloggið- það virðist gefa mér ákveðna ánægju og gleði að sinna þessu litla bloggi mínu og mikið sem ég vona að lesendur hafi einnig gaman af :)

Eftir að hafa verið hjá hetjunum mínum í Noregi var ég í ákveðnu tilfinningalegu uppnámi í smá tíma...langaði bara að búa mér til hreiður hérna heima á Espiflöt þar sem ég gæti bara verið allan daginn með mann og börn hjá mér og við gætum knúsast saman. Ég sá þó fljótt að prinsSkessurnar tvær yrðu fljótt þreyttar á þeirri hugmynd móður sinnar og ákvað því að hleypa þeim af stað í sína daglegu kátínu. Enda er hversdagleikinn og núið það sem við eigum helst að njóta og gera gæðastundir úr annars þeim tíma sem maður er alltaf að bíða eftir að klárist eins og t.d. heimavinnu, því að koma morgunfúlum litlum stúlkum af stað í skóla o.s.frv.

Það hefur líka verið nóg að gera í vinnunni þessa dagana- sem er bara gott! Ég er svo heppin að vera að vinna með hóp af frábæru fólki :)

Í gær klæddist ég svo kjól sem ég hef mikið verið að velta fyrir mér. Ég horfði á hann í búðinni í ca. mánuð áður en ég keypti hann, hafði hann svo í skápnum í annan mánuð áður en ég ákvað loks að fara í hann í gær:

Þetta er kjóll frá Farmers Market og yfir hann er ég í peysu frá Geysi

Ég var að reyna að fela á mér fésið þar sem mér fannst ég eitthvað svo mygluð! ;)

Kjólinn er þykkur og þröngur og þegar ég er komin í Geysispeysuna góðu utan yfir þá er þetta alveg fullkomið fínt vetrarátfitt :)

HP

No comments:

Post a Comment