En rúmum klukkutíma eftir að ég lét þessi orð falla þá var líkt og einhver hefði einfaldlega slökkt á mér, ég varð sjúklega þreytt og slöpp og leið eins og mér væri illt í sálinni eða kvíðin- afskaplega furðulegt!
Í morgun vaknaði ég svo með illt í eyrunum og hnerrandi + það að vera ógeðslega mygluð!
En ég á bara framundan hálfan vinnudag í dag og svo helgarfrí þannig að ég ætla að dúndra mér útí daginn og vonast til þess að hrista af mér þennan aumingjaskap ;)
Við eigum nefnilega skemmtilega helgi framundan- við ætlum að taka eldhúsið okkar í gegn og um helgina skal það sparslað, pússað og málað. Svo ætlum við aðeins að breyta því og bæta- ég skal taka myndir fyrir og eftir !
Ætla núna að láta fylgja myndir af skápatiltekt á baðherberginu.
Ég á fullt af snyrtidóti og viðurkenni fúslega að ég er ein af þeim konum
Þið verðið bara að afsaka myndgæðin- en ég er á leiðinni í að fá professional ráðgjöf í að bæta myndatökur mínar og myndefni síðunnar.
Hér má sjá baðskápinn minn fyrir...allt svona svolítið á rúfi og stúfi
Fór í húsasmiðjunna og keypti einfaldar svona vírkörfur til þess að ég þurfi nú ekki lengur að troða mér hálfri inn í skápinn til þess að finna það sem ég leita að
Naglalaökk, hárspennur og teygjur vandlega komið á sinn stað- á meira að segja laus box til að að bæta einhverju í safnið hjá mér :)
Þarna geymi ég ýmiskonar töskur og veski og svo átti ég plexibakka sem passaði svona akkurat þvert yfir körfuna og geymir snyrtidót sem oft er gripið til.
Hlakka til að fara með ykkur í gegnum eldhúsbreytingar og betri myndir !
Njótið lífsins....
HP




Og mér sem fannst skáparnir þínir svo fínir miðað við mína. Viltu koma að taka til. Lesist henda.
ReplyDeleteKv.
Bjarnveig