Sunday, October 6, 2013

Sara

Í Tromsö í Noregi býr lítil fjölskylda sem er mér afar kær og ég svo glöð með að fá að eyða nokkrum dögum með þeim þessa dagana.
Mikið sem ég vildi að ég væri hér stödd af skemmtilegra tilefni en raun ber vitni.  Í ágúst síðastliðnum fæddist Unni æskuvinkonu minni lítil stúlka- prinsessan hún Sara.  Sara er hinsvegar alvarlega veik og ljóst er að hún mun ekki stoppa lengi með okkur í þessum heimi.
Það eru forrréttindi fyrir mig að fá að koma hingað og taka þátt í lífinu og sorginni sem vinir mínir eru að ganga í gegnum, þau standa sig eins og hetjur. Dugnaðurinn, staðfestan og lífskrafturinn sem vinkona mín sýnir er ótrúleg.
Hér getum við setið og grátið saman en jafnframt fengið okkur gönguferðir og haft kósýkvöld- hlegið og sagt brandara. Brosin sem ég sé hér eru einlæg og einstök- nú skal standa saman til að missa ekki sjónar á því fallega og góða sem lífið hefur upp á að bjóða.

Hér fékk ég að knúsa Söru í fyrsta skiptið

Þórgunnur alsæl með prinsessuna

Sara með fallegu augun sín

Duglega, fallega, dásamlega vinkona mín með ungana sína tvo :)

Verum góð hvert við annað, berum virðingu fyrir lífinu og lærum að meta það!

HP



6 comments:

  1. Viknaði við þessa lesningu. Ómetanlegt fyrir ykkur vinkonurnar að deila sorg og gleði með Unni sem hefur reynt svo margt á ekki lengri ævi. Veit að þið Þórgunnur færið henni ómetanlegan styrk sem hún og þið allar munið búa að alla tíð. Stolt að eiga svona kjarnakonur að í mínum ranni.

    ReplyDelete
  2. Gleymdi víst að segja hverra manna ég væri. MBK Helga Snorra

    ReplyDelete
  3. yndislegt hjá ykkur, það eru forréttindi að eiga svona frábærar og góðar vinkonur. Knús á ykkur allar. Viltu gefa Unni og fjölskyldu knús frá okkur Hreggviði.
    kveðja Halldóra

    ReplyDelete
  4. Falleg orð hjá þér elskuleg og Unnur er svo heppin að eiga þig að!
    Faðmlög til Tromsø :)

    ReplyDelete
  5. Uff hér græt ég bara yfir fallegu orðunum og myndunum

    Vinur sem skilur þig, skapar þig.
    Kveðja Hófý Skúladóttir

    ReplyDelete
  6. :(
    Ég sendi ykkur öllum mínar fallegustu hugsanir!

    ReplyDelete