Ég til dæmis er: mamma, stjúpmamma, eiginkona, tengdadóttir, mágkona, vinkona, frænka, systir, ömmubarn, dóttir, nágranni, yfirmaður, starfsmaður, samstarfsfélagi, hjúkrunarfræðingur, rekstarstjóri og svo mætti áfram telja....
Ég vil helst aldrei taka neitt að mér nema að ég geti sinnt því að metnaði og heilum hug, leiðist að gera hlutina með hangandi hendi og einfaldlega þoli ekki þegar ég get ekki eitthvað! Enda skal ég viðurkenna að ég tel mig geta næstum allt ef hugurinn er fyrir hendi. Las eitt sinn í gamalli læknaskýrslu frá því ég var ca. 11-12 ára: "stúlkan er ákaflega metnaðargjörn og gerir miklar kröfur til sjálfs síns" í akkurat því tilfelli þótti þetta víst ekki kostur því mínar eigir kröfur voru víst að valda mér magaverk.
Í dag tel ég þessar kröfur þó vera einn minn helsta kost. Eiginmaðurinn tekur stundum að sér hlutverk demparans og segir mér að slaka aðeins á og ein góð vinkona benti mér á það góða markmið að njóta þess að lifa í "núinu"- þegar þetta allt er í góðu jafnvægi þá er ég góð!
Ég náði mér í leiðinda kvefpest í síðustu viku og þar sem ég taldi mig vitaskuld vera ákaflega ómissandi í öllum hlutverkum þá hafði ég engan tíma í þetta... demparinn benti mér góðfúslega á að það þyrfti meira en ca. 4 mínútur til að jafna sig á hita og hálsbólgu. Ég tók því að mér hlutverk "hlýðnu eiginkonunnar" og stytti vinnudagana og slakaði á.
í dag fór ég heim úr vinnu á hádegi:
Kveikti á kertum og hitaði mér tebolla
Kláraði að ganga frá endum á fína afgangateppinu mínu :)
Eiginmaðurinn kom svo heim með þennan dásamlega Rósagreinavönd!
Eruði ekki örugglega búin að fara í næstu blómabúð og næla ykkur í grein? Mæli meððí! :)
HP



Mikið þekki ég sjálfa mig í þessum skrifum þínum um veikindin, en gott er að þú átt góðan dempara og ljúfan eiginmann sem hefur vit fyrir eiginkonu sinni svona endrum og eins :)
ReplyDeleteFaðmlög frá Trondheim
Allt er best í hófi, það á við metnaðinn eins og annað.
ReplyDeleteVæri sko búin að kaupa mér svona rósavönd ef fengist hér á Dalvíkinni.
Kv.
Bjarnveig