Hér svindla ég eiginlega smávegis með því að sýna ansi slæmar "fyrir" myndir... elhúsið okkar er vitaskuld ekki alltaf svona á hvolfi en eiginmaðurinn var farin að hefja framkvæmdir þegar ég kom heim úr vinnunni einn daginn...
Þarna er semsagt búið að taka háfinn niður og veggjaþrif hafin
Borðkrókurinn fyrir breytingar
Hér á eftir koma svo myndir eftir breytingar....við máluðum alla veggi en héldum okkur bara við sömu liti, enda áttum við þá málningu til og eins gott að nýta bara það sem til er :)
Hér erum við búin að setja upp hálfhringi úr stáli bæði aftan við eldavél og vask, þetta hjálpar vonandi til við að vernda veggina og halda eldhúsinu hreinu. Einnig eru þarna komnar hillur á vegginn, mér til mikillar ánægju. Hefur lengi langað að koma matreiðslubókunum mínum inní eldhús!
Coca cola upptakarinn góð fær sinn heiðursess á veggnum!
Á vegginn við eldhúsborðið lét ég gera fyrir mig texta sem við límdum á vegginn
Hér má sjá textann í nærmynd
Mesta breytingin er í borðkróknum því við erum með "nýtt" eldhúsborð. Fundum þetta eldgamla borð uppi á lofti hér í húsinu, það var nýtt sem eldhúsborð þegar að tengdapabbi var lítill.
Keypti þennan stól í Góða hirðinum...hann passar eins og flís við rass í þetta "nýja" útlit!
Vantar bara einn svona til viðbótar og þá er ég góð :)
Ætli þetta sé ekki komið gott af myndum í bili, ég er hæstánægð með breytingarnar og búin að vera spennt yfir því að deila gleðinni með ykkur lesendur góðir !
Næst á dagskrá er svo forstofan- hún er mestöll inni í stofu núna á meðan verið er að mála :)
HP






Flott
ReplyDeleteKv. BI