Forstofan er nú komin með málningu á veggina og búið að hengja allt upp- við eigum þó loftlistana eftir og að mála gluggann. Kem með myndir aðeins seinna, er ekki búin að ná að gera alveg hreint- svona Heiðuhreint!!
Um daginn talaði ég um að ég myndi sjálfsagt aldrei finna mér draumasófann, en ég sagði ekki alveg rétt frá. Ég er löngu búin að finna hann en mun bara aldrei hafa efni á honum.
Polder sófinn í grænu- dásemdin ein!
Sófinn er þó ekki eina hönnunarvaran sem mig langar í:
Hafiði séð þennan leðurkjól frá Helicopter? Mér finnst hann truflaður!
Njótið lífsins- HP


Ertu viss um að það sé gott að sitja í sófanum. Er ekki bara að byrja að safna þá hefst þetta á endanum.
ReplyDeleteKv.
Bjarnveig