Mikið sem ég held að það verði mikil breyting á eldhúsi og forstofu þegar að þessu ferli verður lokið. Við erum ekki í neinum stóraðgerðum- bara svona aðeins að breyta og bæta, erum heldur ekki komin með allt í hendurnar til að klára verkið og því náum við ekki að klára allt á helginni.
Það hefur sannað sig líkt og áður í sambúð okkar hjónanna að það veit aldrei á gott að hleypa mér af stað með málningarfötur og pensla- það verður allt útbíað. Sælla minninga þegar ég steig ofaní málningarfötuna þegar við fluttum fyrst inn í húsið!
Ákvað að koma með mynd af þeim hluta stofunnar sem ég er búin að ná að gera eins og ég vil hafa. Hinn hlutinn verður ekki fullkomnaður neitt á næstunni því ég er alltaf að leita að draumasófanum- sú leit gæti tekið mig ævina.
Íslandskortið frá Geysi passar svo afskaplega vel þarna inn, á dögunum ákvað ég svo að splæsa mér í þennan bláa kertastjaka frá IKEA sem mig er búið að langa í ansi lengi. Litla hvíta blómavasann fékk ég þegar ég var í Noregi á dögunum ( agalegt ástand að blómabóndinn sjálfur skuli ekki vera með blóm í honum!)
"Heimilislegri" mynd af þessum helming stofunnar, þarna má sjá borðstofustólana mína sem engan vegin eru samstæðir sem mér líkar vel. Einnig má sjá þarna hálfheklað teppi á borðstofuborðinu- ég kláraði það í morgun og þarf núna bara að ganga frá endum og hekla kant :)
Nú svo væntanlega takið þið eftir að ég er þarna líka!
Kisu líður best þegar hún fær að kúra sig í gamla sófanum og ofaná ullarteppi frá Geysi...
HP

Kisa sæta, veit hvar er best að vera :) Hlakka til að sjá eldhús eftir breytingar :)
ReplyDelete