Ég byrjaði árið ansi kröftuglega í handavinnunni en svo undanfarin mánuð hef ég verið i algjörri lægð og lítið haft mig í það að taka upp heklunál eða prjóna. Þó er ég alltaf með eitthvað bæði á nálinni og prjónunum og mig langar að sýna ykkur smávegis:
Ég er semsagt að prjóna peysu handa MÉR! Ég geri yfrleitt ekkert á sjálfa mig en hefur lengi langað að prjóna mér fallega peysu og lét verða af því núna. Ég fann fallega gult garn í Litlu prjónabúðinni og fékk uppskrift þar líka. Ég er að nota tvær tegundir af garni og prjóna þræðina saman, annars vegar er ég með Lama ull og hinsvegar garn sem heitir Yaku og er 100% superwash ull.
Ég er styðjast við uppskrift frá Litlu prjónabúðinni en geri peysuna þó í garðaprjóni og með ýmsum útfærslum, hér eru nokkrar myndir af verki í vinnslu:
Ermi í vinnslu
Búin með búkinn upp að handvegi...vasarnir eru þarna í vinnslu
Ég er að styðjast við þessa uppskrift :)
HP
Váá lúkkar ekkert smá vel...
ReplyDelete