Lilja Björk útskrifaðist í morgun frá leikskólanum Álfaborg... stóra stóra stelpa!
Eftir hátíðina á leikskólanum þá héldum við heim á leið til að halda hátíð á Espiflöt, fyrirtækið fagnar 65 ára afmæli sínu í dag og auk þess var verið að halda uppá það að nú hafa orðið tímamót í sögu fyrirtækisins því þriðji ættliður hefur tekið við búskapnum- við Axel höfum fest kaup á meirihlut í fyrirtækinu :)
Ég er ekki komin með neinar myndir frá þessum merka degi- eftirlét ljósmyndaranum i fjölskyldunni þá myndatöku og hlakka til að fá að sjá nokkrar myndir hjá honum á næstu dögum.
Mig langar hinsvegar að deila með ykkur nokkrum myndum frá síðastliðinni viku:
Lilja Björk varð 6 ára á dögunum og fékk regnbogaköku í tilefni dagsins :)
Adda Sóley alveg ofboðslega kát í nýja dressinu sínu
Það þarf að hafa afmælisblóm fyrir afmælisstelpu!
Læt þetta nægja í bili- þemamánuðurinn blogg á dag er hafin!
HP

Til hamingju með Espiflöt :) En gaman!!!
ReplyDeleteOg glæsileg kakan, mun gera þessa þegar HH á afmæli í september.
Knús og kossar, Lára
Ps. mér finnst að hverri færslu ætti að fylgja niðurtalning í húsmæðraorlofið!!
Hlakka til að fylgjast með :) Regnbogakakan var flott og ekki síður táslurnar hennar Öddu :)
ReplyDeleteVerst finnst mér að hafa misst af bæði útskriftinni í leikskólanum og afmælinu. Ætlaði mér aldeilis að koma og horfa á krakkana "mína" útskrifast
kv. Ósk