Friday, May 3, 2013

3.maí

Snyrtivörur er innihaldið í dag:)

Ég hef gaman af því að skoða nýjar snyrtivörur og skal fúslega viðurkenna að ég er svolítill "brandari" þegar kemur að þeim, þ.e. ég er veik fyrir merkjum sem þykja fín og flott!
Ég hef undanfarið átt í erfiðleikum með að finna farða á andlitið á mér sem er nægilega ljós fyrir mína fölu húð og getur hjálpað mér að fela þreytumerki eftir annasaman vetur.
Ég festi kaup á þessum farða frá YSL og er afskaplega ánægð með hvernig hann kemur út:
Þekur mátulega mikið, gefur fallegan ljóma og endist út daginn!

Eftir að ég dró mig í hlé frá hjúkkustörfunum þá finnst mér gaman að gera neglurnar mínar fínar, nú mega þær nefnilega ná fram yfir fingurbroddinn og skarta fallegum litum án þess að ég sé að brjóta reglur:
Þetta græna og sumarlega naglalakk kemur frá L´oreal. Finnst naglalökkin frá þeim vera á svo góðum prís og í passlega stórum ílátum.

Kveðja frá þessari sem er komin í helgarfrí :)

HP

1 comment:

  1. Ú ég á þennan farða.. og finnst hann æðislegur :)

    Kv. Halldóra Víðis.

    ReplyDelete