Monday, August 20, 2012

Nestið

Í vinnunni minni get ég vissulega fengið að borða en þar sem ég hef aldrei verið mjög mikið fyrir skyndibita þá sleppi ég yfirleitt matnum þar. Til þess að gleyma því ekki að borða er ég að reyna að muna eftir því að koma með nesti. Mér finnst alveg rosalega gott að blanda mér drykk í elskulega Kitcen aidinum mínum sem er einmitt annað heimilistæki sem ég nota óspart!
Hér má sjá random uppskrift að nestisdrykknum mínum:

Frosin ber, hnetur, chiafræ, banani og blandaður appelsínu safi. Öllu skellt í mixerinn og blandað vel.
Skella þessu í tóman brúsa og grípa tvær heilhveitibollur með og hádegismaturinn er klár :)

En að öðru...ég pantaði örlítið heim af modcloth síðunni um daginn og þar með setti ég í körfunna tvenn hræódýr gleraugu sem partur af tilraun minni til að vera "töff týpa". Afraksturinn var þessi:

Jú ég get með herkjum púllað þessi....
Með þessi lít ég út fyrir að vera sextug!!

Farin að hreiðra um mig í sófanum :)

2 comments:

  1. Elska bloggið, þig og gleraugun!!! Púllar vel þessi efri!!!
    Knús á þig elskuleg :)

    ReplyDelete
  2. Vá hvað þú ert meeeega kúl með þessi bæði gleraugu..elska hvað þú ert mikil týpa !!!

    En læturu chia fræin liggja í bleyti eitthvað fyrst ? Og hvað er í hveiti bollunum.. ?

    lovlov..

    ReplyDelete