Thursday, August 23, 2012

Afmælis

Ég átti afmæli á dögunum, átti alveg hreint yndælis dag sem einkenndist af kökuáti og söng :)
Þetta sæta skott söng ammlí ammlí og gaf mömmu sinni pakka

Ég hef í rúmlega 6 ára sambúð með eiginmanninum víst "vælt" reglulega um morgunmat í rúmið, vælið virkaði að lokum :)
Þessar tvær litlu morgunkrumpur voru sáttar með köku í morgunmat!

Fleiri myndir er ég ekki með af þessum góða degi.
Af handavinnunni er það að frétta að ég rakti í gær upp kjólinn góða, allt í einu handviss um að ég vilji ekki þennan heldur annan! Ég vinn þó hörðum höndum að nokkrum leyniverkefnum sem ég get ekki póstað því þau eiga vonandi að rata í einhverja pakka í desember.
Býst þó við að það verði ekki seinna en í dag sem ég byrja á kjólum á stelpurnar og leyfi ykkur að fylgjast með :)
Eruði ekki spennt??? :)

2 comments:

  1. ER!!!! Geggjað... veit ekki hvenær það verður, en ég hlakka til að sitja í náttfötum og ullarsokkum í sófanum á Espiflöt, með hvítt í glasi og saltstangir og ídýfu og horfa á Clooney með þér ;)

    ReplyDelete
  2. Flott síða hjá þér :) verður gaman að fylgjast með ykkur fjölskyldunni :)

    ReplyDelete