Sunday, August 19, 2012

Brauðvélin

Ég og eiginmaðurinn fengum alveg hreint frábæra jólagjöf í fyrra frá tengdaforeldrum mínum...brauðvél! Vélin sú hefur svo sannarlega verið mikið notuð og það er meira segja hægt að tímasetja hana, setja innihaldsefni í að kvöldi og þegar við vöknum daginn eftir bíður okkar ilmandi nýbakað brauð :)
Í kvöld var ég að setja innihaldsefni í vélina og datt þá það í hug að blanda í nokkur aukabrauð og geyma í döllum og þá er voðalegta fljótlegt að skella í vélina!
Ofsalega sniðugt!

Ég er prjónaæst þessa dagana...langar helst til þess að hætta að vinna og fara bara að prjóna. En þó svo að ég myndi prjóna til að selja þá gengi það aldrei upp því ég prjóna svo hægt.
Ég komst í Litlu Prjónabúðina í Hátúni í vikunni og fékk mér garn í nokkrar flíkur, þetta er hrikalega æðisleg búð með svo mikið af mjúku og fallegu garni. Ég stóðst ekki mátið og "stashaði" mig aðeins upp af nokkrum fallegum dokkum. Annars vegar 100% ullargarn og svo garn sem er blanda af ull og bómull. Ég er lítið fyrir það þessa dagana að prjóna úr íslenska lopanum enda ágætt að pása sig frá því annað slagið.
Hér má sjá byrjunina á kjólnum sem ég er að prjóna, uppskriftin er þarna til hliðar en ég er með grátt garn á prjónunum.
Hér má svo sjá dokkurnar sem "bíða spenntar" eftir að komast á prjónana mína :)

Farin að taka í nokkrar lykkjur!

3 comments:

  1. Aðeins að tékka hvort að kommenta kerfið virki :)

    ReplyDelete
  2. Verður gaman að fylgjast með, þú ert allt of dugleg? Nokkuð á spítti?! Eva

    ReplyDelete
  3. Snilld :) Ég er einmitt orðin prjóna og hekl-óð, sem væri betra ef ég vissi eitthvað ég ætti að gera. Ég prjóna bara trefla og hekla ömmu-ferninga. Heklnámskeið á morgun svo ég get kannski farið að grobba mig við þig eftir árið.

    Og geðveikt fatahengið þitt... ég kannski fæ minn heittelskaða til að herma?!? hehe. ÁFRAM HEIÐA!

    kv. Kata

    ReplyDelete