Reyndar er ég alveg að verða búin með eitt skemmtilegt verkefni. Ég er svo afskaplega heppin í lífinu að eiga stóran hóp af frábærum vinkonum, bæði frá barnæsku, menntaskóla og sem ég hef kynnst hér í sveitinni. Ég er því búin að vera með ákveðið verkefni í kollinum í svolítinn tíma: Vinkonusjalið
Þar sem að prjóna og hekla mikið þá safnast alltaf upp mikið af afgöngum af garni. Ég ætla mér að safna saman öllum afgöngum og svona einna helst af "snobbgarninu" mínu, einnig mega alveg fara þarna inn heilar dokkur af einverju sem ég hef verið að safna að mér. Þegar svo að ég er komin með safn af litum sem mér finnst henta einhverri vinkonu minni þá fer ég í það að finna uppskrift og annaðhvort hekla eða prjóna sjal. Svo mun einhver af þessum frábæru vinkonu mínum fá sendan til sín pakka. Vinkonusjalinu fylgir ein "kvöð" í hvert skipti sem þær setja það upp ( sem ég vona vitaskuld að verði oft og mörgum sinnum) eiga þær að hugsa fallega hugsun til einhverrar vinkonu sinnar.
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá garnið sem ég er komin með í fyrsta sjalið, sem ég reyndar búin að hekla en á eftir að ganga frá endum á- verkefni dagsins kannski?
Ég byrjaði í leyniprjóni með þetta fallega fallega garn en þar sem uppskriftin í leyniprjóninu var svo langt frá því að heilla mig þá var það rakið upp og þetta fær einhver önnur örlög :)
Þessi gengur reyndar ansi hratt og ég er að vona að ég nái að klára hana um helgina.
Peysan Sumarrós úr 5 þráða Snældu. Þessi á að nýtast undir leðurjakkann, ég er að vona að þetta verði alveg skothelt kombó fyrir íslenska veðráttu!
Blogg 3 daga í röð- hvað er að gerast?
Meira síðar
Heiða



En falleg og skemmtileg hugmynd systir góð, græna peysan verður örugglega æði líka.
ReplyDeleteOk, ég elska þessa hugmynd að vinkonusjalinu! Ég er í svipuðum pælingum.
ReplyDeleteHLAKKA TIL AÐ SJÁ SUMARRÓS! Nú er ég mega montin! Veij!