Hann er dásemdin ein þessi nýfæddi sonur minn. Hver hefði trúað því að það sé svona allt annað líf að vera í orlofi með nýfætt barn? Hann er jú 3ja barnið mitt en í fyrsta skiptið sem ég er í fæðingarorlofi, ég átti báðar stelpurnar í námi og hægði ekkert á mér í námi, verknámi né prófum. Núna hef ég tíma til þess að njóta… þetta er jú ekkert alltaf dans á rósum en lausa tímann sem ég fæ get ég nú reynt að nýta í að safna kröftum og vera tilbúin í næsta slag!
Systurnar og Klöruskottið okkar fóru í framleiðslu á listaverkum
Svo fóru allir í það verkefni saman að baka fyrir skírnina hjá litla bróður- það er þó eithvað lítið eftir og því líklegt að mamman taki kvöldin í bakstur þessa vikuna og feli afurðirnar jafn óðum!
Þessar tær eru svo sætar og mjúkar að mig langar að taka smá bita!
Heiða



Ohh sjá þetta rúsínuraggat!
ReplyDelete