Monday, May 11, 2015

Handavinnuklár

Eitthvað aðeins potast áfram í handavinnunni þessa dagana. Málið er það að verknaðurinn að hekla eða prjóna hefur ansi lengið verið mín leið til að slaka á. Mér er lífsins ómögulegt að setjast eða leggjast fyrir framan sjónvarpið og gera ekkert… hef reynt það ansi oft en það er bara ekki að ganga.
Síðan hvítvoðungurinn kom í heiminn hefur nú ekki verið mikill tími til að sinna þessari slökun og ég held að sá tímaskortur ( og jú orgið í ljúflingnum litla) sé ástæðan fyrir því að ég er svolítið svona trekkt á taugum!


Ölduteppi úr Þóru Heklbók, gert úr kambgarnsdokkum sem ég átti til. Ég byrjaði á þessu teppi fyrir rúmlega ári síðan og svo hafði það legið í dvala þar til ég mannaði mig upp í að klára það í síðustu viku.

Lambúsettan Bríet gerð eftir uppskrift úr Heklfélaginu úr silkiblöndu garni sem ég keypti í Litlu Prjónabúðinni ( man bara engan vegin hvað garnið heitir).
Mér tókst ekki nægjanlega vel til með þessa húfu og stroffið við andlitið er hálf misheppnað- ég mun gera aðra tilraun aftur seinna.



Teppið er gert úr garni sem ég átti til og vegur 374 gr
Húfan er úr nýju garni og vegur 46 gr
Staðan í garnvigtun er því svona:

Gert úr eldra garni = 2342 gr
Gert úr nýju garni = 156 gr

Heiða




No comments:

Post a Comment