Saturday, March 21, 2015

Prjónaklár

Ég prjónaði peysu á eiginmanninn áður en við giftum okkar, brúna opna lopapeysu sem notuð var í brúðkaupinu. Síðan þá hefur hann ekkert viljað nota hana og ég harðákveðin í að prjóna ekkert á hann þar sem hann noti ekki prjónlesið! En svo var ég ansi lengi búin að horfa á uppskrift eftir Stephen West á Ravelry af peysu sem ber heitið Drangey…. mikið sem mig langaði að prjóna hana.
Þegar við vorum svo á leið í helgarferð í sumarbústað í byrjun mánaðarins og ég svo til verkefnalaus, gróf ég í garnlagerinn og sá að ég átti til fallegt garn í peysuna.
Nú er hún fullkláruð, passar fullkomnlega og eiginmaðurinn fullvissar mig um að þessa muni hann nota vel og mikið :)

Uppskrift: Drangey, Stephen West
Efni: 3ja þráða Snælda og Manos del Urugay Sillk Blend
Prjónar: 4 og 4,5
Vigt: 438 gr

Staðan í garnvigtun er því svona:
Gert úr eldra garni= 1752 gr
Gert  úr nýju garni= 110 gr

Ég fer svo rétt bráðum að byrja á einhverju úr nýja garninu sem ég á í pokahorninu ;)

Heiða

1 comment:

  1. Flott peysa og Heiða ekki gleyma að senda mér link á hina peysuna.

    ReplyDelete