Allt tilbúið fyrir komu marsbúans og spenntar systur sem vakna á hverjum morgni og glápa á bumbuna á mömmu sinni og eru að vonast til að krílið fari að koma sér í heiminn. 39 vikur á morgun þannig að það sér vel fyrir endann á þessu :)
Við mæðgur höfum svolítið verið að hafa það kósý
Stelpurnar framleiddu listaverk
Ég fór í bumbumyndatöku
Svona líka ægilega kát með þetta :)
Rétt í þessu var ég svo að klára að þvo og leggja þessa peysu til þerris. Hún er á eiginmanninn og ég hlakka mikið til að taka betri myndir af henni og sýna ykkur.
Byrjaði svo að hekla lambhúsettu úr Heklfélaginu, gott verkefni til að hafa með sér á ferðinni.
Síðar
Heiða




Ohh hvað við hlökkum til líka og æðislegt að lífið sé ljúft og það sé verið að hafa það gott áður en allt verður svona hmm meira krefjandi hehe :) Og spáðu líka í því að svo á Adda Sóley ekkert eftir að muna eftir tímanum þegar hún var yngst eða allavega man Anja ekkert eftir tímanum "fyrir Grétar" hehe..
ReplyDelete