"Heiða, af hverju ertu með sólgleraugu í vinnunni?" " Af því að ég er svo svöl."
Nei... ekki alveg. Ég er með tryllingslega vöðvabólgu sem veldur mér miklum höfuðverk. Það sem svo verra er að vöðvabólgan hefur gert hægri hendina svo til óstarfhæfa og ég get ekki prjónað!
Þessi gleðipinni vildi halda skemmtipartí með mömmu sinni á dögunum þegar eldri systirin fékk að fara í skólabíó. Hennar besta skemmtikvöld er að spila og borða popp- dásamlegt!
Það er augljóslega of langt síðan ég hef tekið hjúkkuvakt. Ég horfði á æðarnar í ristinni á mér um daginn og hugsaði um hvað það væri nú gaman að setja upp æðalegg þarna!!
HP

No comments:
Post a Comment