Tuesday, May 13, 2014

Lífið...

Mæðradagurinn var á dögunum. Dætur mínar eru of ungar til að skilja þennan dag og svo eiga þær pabba sem ekki er mikið fyrir tyllidaga af neinu tagi nema þeir innihaldi að ég eldi góðan mat. Að kvöldi þessa dags eldaði ég því góðan mat eftir að hafa eytt deginum með dætrunum. Við sátum hluti stórfjölskyldunnar saman og upp kemur í umræðunni hvaða dagur er og við mæðurnar við borðið förum að blaðra um að við höfum ekkert fengið í tilefni dagsins.
Eldri dóttir mín hvíslar því að pabba sínum " Pabbi getur þú farið upp á loft og náð í eitthvað drasl sem mamma er búin að gleyma að hún á og við gefum henni það?"
Þetta er hugsanleg besta setning sem ég hef nokkru sinni heyrt, það er ekki víst að ég muni nokkurn tíma hætta að hlægja að þessu.


Já þær eru svo sannarlega úrræðagóðar PrinsSkessurnar tvær!

Mig hlakkar eiginlega bara sjúklega til að eiga afmæli og sjá hvaða drasl
 sú eldri dregur upp fyrir mig þá.

HP


3 comments:

  1. Ætli hún hafi nú ekki eitthvað upplifað það að þú skoðir í kassa af loftinum og hafðir ekki hugmynd um hvað margt fallegt leyndist þar.
    En Lilja Björk er nú sérlega úrræðagóð.
    Kv.
    Bjarnveig

    ReplyDelete
  2. Ahahahahah nú hló ég upphátt!!! ;)
    Hún er svo mikill snillingur þetta barn og það liggur aldrei á svörum hjá henni.
    Ást, Lára

    ReplyDelete