Monday, April 21, 2014

Páski pásk

Ég man aldrei í lífinu eftir því að hafa borðað jafn mikið eða verið jafn löt í marga daga í röð líkt og verið hefur þessa páska. Ég hef varla misst úr klukkustund án matar og aldrei nokkurn tíma glápt jafn mikið á sjónvarpið.
Það var mikið gott að komast í vinnuna í morgun- hangs til lengri tíma er ekki minn tebolli!

Ég er að undirbúa afmælisveislu heimasætunnar þessa dagana- ég hef kallað til stórskotaliðið í aðstoð við bakstur og skreytingar. Þegar ég baka breyti ég nefnilega eldhúsinu í stríðssvæði og þegar ég reyni að föndra vaxa á mig 10 þumalfingur. Engu að síðar þá hef ég sett markið hátt að þessu sinni. Dóttirin vill þriggja hæða köku, rokktónlist og gulur er nýji uppáhaldsliturinn hennar. Við getum unnið með það.

Litla systir er í heimsókn. Þar sem ég þoli ekki að ganga frá skrauti þá var hér bara sett upp páskaskraut sem má borða, drekka eða henda. Við páskaskreyttum á okkur neglurnar og fengum okkur páskakók.

Þessar gulu gerberur eru svo líka alveg truflaðar

Það hefði verið glæpur að smella ekki af mynd af þessari fegurð á páskadagsmorgun

Ég byrjaði bara að þurrka af en það endaði á því að við erum gardínulaus og sjónvarpið á gólfinu ef það hefði ekki verið páskadagur þá hefði ég hlaupið út í búð eftir málningu og hugsanlega nýjum sófa!

HP

No comments:

Post a Comment