Ég vil hafa hlutina í röð og reglu, ég vil vinna eftir verkplani og starfslýsingu, ég er fáránlega stundvís og tala oft of hátt og mikið. Hugsanlega er ég bara pínu leiðinleg!?
Ég vil líka geta skilgreint hlutina og þar þvælist bloggið fyrir mér. Hvernig á ég að skilgreina það? Þetta er ekki tískublogg, ekki handavinnublogg, ekki hönnun og lífsstíll. Meira svona sambland af öllum reitum þessarar rúðustrikuðu.
Undanfarið hefur Handavinnu-Heiðu þjáðst af gríðarlegum athyglisbrest. Ég fer úr einu verkefni í annað, rek upp, hendi hálfkláruðum verkum, byrja á einhverju nýju, misreikna prjónfestur og nenni ekki að ganga frá endum. Niðurstaðan= engar afurðir aðrar en hálfkláruð verk og mikið af þeim!
Ég heklaði heilmargar dúllur úr garni sem var til í garnskápnum
Ég valdi svo dúllur og raðaði saman, er að hugsa um að gera hekla þær saman í litasprengju ungbarnateppi. Haldiði að þetta sé of mikið eða hugsanlega nothæft?
Tilraun 2 við prjón á appelsínugulri peysu. Ég var komin ansi langt með þessa peysu en sá þá að þrátt fyrir að ég myndi bæta á mig ca 100 kílóum þá yrði hún enn of stór. Hér er því tilraun 2 á prjónunum og prjónfestan á betur við raunveruleikann
Lilja Björk á að fá þessa peysu úr Lama-ull. Skipulagið er að stríða mér og ég finn ekki sokkaprjónana mína og er þess vegna ekki byrjuð á ermunum!
Lopapeysan Laufey er á byrjunarstigi...
Þessi lambhúsetta á nú alveg vandræðalega lítið eftir í að vera tilbúin...
Svo ætlaði ég að taka þátt í sam-leyniprjóni og nýta í það hluta af þessu garni. Ég náði þó ekki að telja í mig kjarkinn... ég verð líka hugsanlega laus við athyglisbrestinn næst og læt þá vaða!
HP







Mikið skil ég þig með þennan handavinnuathyglisbrest.
ReplyDeleteStefni á það á árinu að klára eitthvað af tugagömlu sem leynist á skápunum hjá mér.
Páskakveðja, þar til ég kem næstu nótt.
BI