Sunday, April 6, 2014

Kanarí

Við hjónin erum semsagt komin heim frá Kanarí, þar var dásamlegt að vera í eina viku í hitanum og það besta er að svo var líka algjörlega frábært að koma aftur heim.

Kokteilarnir á hótelbarnum komu tilbúnir úr einhverskonar djúsvél- engir klakar- engin hristari- enginn heitur barþjónn. Þeir voru vondir.

Myndir:

Nýbúin að bóka okkur inn og lobbý daman búin að lýsa yfir áhyggjum sínum af húðlit mínum

Slæmt að þeir sem voru með mér við þennan sundlaugarbakka höfðu ekki sama brúnkufilter í augunum og ég er búin að setja á þessa mynd!

Túristinn ég varð að taka mynd af þessari eðlu

Hjónin alsátt

Við fórum út að borða á stað sem gerði almennilega kokteila 


HP


No comments:

Post a Comment