Undanfarið hef ég ekki fundið fyrir neinu ofantöldu og hef því bara alveg sleppt þessu.
Ég er enn að vinna í öllum prjóna og heklverkefnunum mínum. Það er hugsanlegt- jafnvel mjög líklegt að ég hafi aðeins farið fram úr mér. Það hafa nefnilega bara fleiri verkefni bæst við og ég gríp í eina lykkju hér og þar. Afurðirnar láta því á sér standa.
Annars er ég að skrifa hér til þess að sleppa helst við að pakka ofaní tösku. Málið er það að ég hef einhverra hluta vegna alltaf geymt gömul sundföt og hafði hugsað mér að geta gripið eitthvað af því með mér í töskuna. Við frekari mátun kom í ljós að bikínið frá menntaskólaárunum hefur hlaupið í þvotti og er svo til ónothæft. Fjárans þvottavél.
Við hjónin erum á leiðinni til sólarlanda í eina viku.
Eiginmaðurinn kom rosalega ánægður heim áðan og hafði hitt mann sem oft hefur farið til Kanarí. Sagði mér að það væru fullt af stöðum að ganga á, skoða náttúruna, leigja hjól o.s.frv. Ég er hrædd um að við séum að misskilja hvort annað með þessa ferð.. við verðum á "all-included" hóteli og ég hafði mestmegnis hugsað mér að sitja í sólinni og hella í mig fríum kokteilum! ( gæti annað ekki hugsanlega talist glataður peningur?)
Ég hef haldið svo til ótrauð áfram í að mynda hamingjumóment...
Bónusinn minn varð 10 ára
Við gerðum risastóran fínan snjókall í garðinum
Ég hafði það gott undir teppi og prjónaði. Góður frændi minn benti mér svo á að þessu mynd hefði hugsanlega geta verið tekin fyrir 20 árum- Friends á skjánum á túbusjónvarpinu ;)
Hún dóttir mín er með svo dásamlega fallegt hár
Ég er svo alveg hrikalega sátt með þennan brúna Arnarhóll Coat frá 66N. Gúmmístígvélin eru líka svo skrambi þægileg- sérstaklega þar sem ekkert malbik er í sveitinni.
Hver veit nema ég komi með uppdeit frá Kanarí ( ef það verður stórfurðulegt þá munið þið bara eftir því sem ég er búin að segja ykkur um fríu kokteilana).
HP


Hefur vonandi pakkað niður handavinnu.
ReplyDeleteNjótið.
Kv.
Bjarnveig