Ég vann í 18 daga straight, ca 10-12 tíma á dag. Fékk frí í einn dag-sem var vel nýttur í að fá gubbupest. Bíð núna bara eftir plagginu þar sem stendur að ég hafi verið kosin starfsmaður mánaðarins.
Ég hef ekkert prjónað, ekkert heklað og hvorki tekið myndir af mér, dætrunum né kettinum.
Á sunnudegi áður en þessi törn hófst þá settist litla fjölskyldan hér við eldhúsborðið við skemmtilega hefð sem myndast hefur hjá okkur á sunnudagseftirmiðdögum. Við erum með tússtöflu á vegg þar sem skráð er hvað skal vera í kvöldmatinn á hverjum degi. Hver og einn fjölskyldumeðlimur fær að velja sér að a.m.k eina máltíð að eigin vali og restin ákvarðast svo af megninu til af innihaldi frystiskápsins hverju sinni.
Það eru engar krúsídúllur og ekkert fínerí á þessari töflu- hún er eiginlega alveg sérlega ljót. En það er í lagi á meðan að hún gerir sitt gagn. Það skal þó viðurkennast að gaman væri ef hún væri svolítið augnayndi. Hæfileikar mínir á myndlistarsviðinu eru þó þessari töflu ekki til bætingar og því verður svo við að sitja.
Núna á sunnudaginn setjumst við svo aftur saman eftir smáhlé og ákveðum matseðil komandi viku!
HP

No comments:
Post a Comment