Tuesday, February 4, 2014

Smástelpan?


Ég gæti aldrei unnið á lögreglustöð

Það er eitthvað við karlmenn í einkennisbúning sem heillar mig, þá sérstaklega þegar þeir eru komnir í skothelt vesti og allan pakkan. Já ég yrði sérlega ónýtur starfskraftur hjá sérsveitinni. (Ég heyri í Dalvíkurvinkonum mínum skipuleggja strippara á 30.tugs afmælinu mínu í sumar….NEI stelpur).

Eitt sinn kom upp atvik í vinnunni hjá mér sem kallaði á aðgerðir lögreglu. Sérsveitin mætti á svæðið. Í fullum skrúða...!  Þegar kom að því að ég átti gefa skýrslu tók andlitið á mér allan skalan í rauðum lit og einhverra hluta vegna voru einu hljóðin sem ég gat gefið frá mér fliss og ískur.
Það er mér lífsins ómögulegt að skilja hvernig fullorðin og vel gift kona sem á tvö börn, rekur stóran vinnustað, hefur endurlífgað einstakling og tekur reglulega mikilvægar ákvarðanir getur skyndilega tekið þessum stakkaskiptum.

 Já- þegar þeir voru að ganga í burtu þá fann ég mig í pinu stund knúna til að  gefa frá mér píkuöskur líkt og fermingarstúlka sem hittir Justin Bieber. Ég gat hamið mig.


Annars er það helst í fréttum að ég byrjaði í heilsurækt í dag. Það er alveg ljóst að ég mun ekki geta greitt mér  á morgun, hugsanlega ekki klætt mig heldur vegna strengja.
En hugsanlega mun ég samt æla regnbogum af hamingju!?

HP

2 comments:

  1. Hahaha, þú getur nú alltaf klætt Axel upp og skrifað fyrir hann handrit!!! ;)
    og hver þarf að greiða sér... isss það er inn í dag að vera með túrban ;) high five fyrir heilsuræktinni!
    xxx Lára

    ReplyDelete
  2. oo já ´sama hér, það er eitthvað við "men in a uniform"!

    ReplyDelete