Sjáiði til ég er samt ekkert að fara að opna fyrir lífssögu af erfiðleikum- ég er bara almennt í svolítið "tíkarlegu" skapi þessa dagana. Mikil óþægindi frá meltingarvegi eru svo ekkert að minnka skapvonskuna eða gera mig minna leiðinlegri!
Það kannast örugglega fleiri við svona daga þar sem maður hefur allt á hornum sér og finnst lífið grátt og þreytandi. Málið er þó það að ég hef það ekkert slæmt- ansi gott reyndar og hef litla ástæðu til að vera með þetta væl. Ég væli samt.
Á svona dögum á ég það til að fara í tiltekt sem ekki borgar sig, ég var til að mynda rétt í þessu að hálftæma fataskápinn minn því mér fannst ég feit og ljót í helmingi flíkanna. Ég er líka búin að færa húsgögn milli herbergja... fullviss um að ég geti gert allt betra og fallegra. Raunin er þó reyndar sú að núna er bara allt í drasli, föt og húsgögn á víð og dreif.
Á morgun ætla ég að vakna i sólkskinsskapi en tel það næsta víst að ég verði ekki ánægð með Heiðu gærdagsins því einhver þarf að taka til allt draslið eftir hana.
Skapvonda Heiða er ekkert að hafa fyrir því að mála sig né greiða sér
Né heldur að ganga frá þvottinum ( gef mér ákveðin + í kladdan fyrir það að hann er hreinn)
HP


Aldrei eins hreint og fínt og þegar maður er búinn að færa til nokkur húsgögn...
ReplyDelete