Saturday, August 17, 2013

Sumarið 2013

Sumarið hefur liðið hjá á ljóshraða og þó mér hafi tekist að gera alveg heilan helling þá fór líka margt fram hjá mér....ég á það þá inni fyrir næsta sumar :)

Ég er með margar háfleygar hugmyndir um hvað mig langar að gera fyrir bloggið mitt og á heilmikið efni til að deila með ykkur því ég hef heilmikið verið að breyta og bæta hér heima við og það gæti verið gaman að deila því. Markmiðið var nefnilega að gera breytingar með svo til engum tilkostnaði og það hefur tekist ótrúlega vel bara með því að enduraða og færa til hluti. Það er þó nokkið ljóst að það þarf að kaupa málningu og sletta á veggina því að þegar tilfærslur eiga sér stað þá verða eftir göt á veggjum ( ég er nefnilega sjúklega jarðskjálftahrædd og læt veggfesta allt sem hægt er!)

Ég sneri skrifstofunni á heimilinu við og það kemur talsvert betur út ( hillur fóru á bakvið hurð sem að stækkar rýmið talsvert) Ég klúðraði því þó að taka fyrir myndir en hérna kemur smá brot af krúttlegheitum sem urðu til eftirá:

Litla Tekk-kistan sem ég keypti í góða hirðinum í vetur fær að njóta sín með 
garnafgöngum í fallegum lit

Gerði smá systra-tribute vegg :)

Garn, tölur og tvinnar fá að njóta sín sem skraut!


Góðar stundir
HP

1 comment:

  1. Veiii...veiiii nýtt blogg !!

    Like á systratribute vegginn..þarf að gera eitthvað svipað hér :)

    ReplyDelete