Thursday, August 22, 2013

Spenningur...

Ég átti afmæli í gær sem var alveg hreint ótrúlega fínt!
Eiginmaðurinn sem ekki er mikið fyrir að kaupa handa mér gjafir eða yfirhöfuð að muna eftir afmælisdeginum mínum tilkynnti mér að ég mætti fara og kaupa mér afmælisgjöf...Takk!
Ég var þó skrefi á undan honum og nokkrum dögum fyrir afmælið þá pantaði ég örlítið smávegis frá ASOS....

Ég hef verið heltekin af þessu vesti í þónokkurn tíma og bráðum verður það mitt!

Ég gat nú ekki hætt á það að vestið yrði einmana með póstinum og ákvað að þessi kjóll ætti líka best heima hjá mér

En þar sem eiginmaðurinn var svo örlátur að leyfa mér að kaupa gjöf þá fannst mér á engan hátt að ég ætti að telja þetta með ( algjörlega augljós staðreynd) og því fjárfesti ég líka í hljómtækjum sem hafa nú þegar verið vel nýtt í 2 daga og ég þarf hugsanlega að fara að henda húsgögnum af heimilinu til þess að stækka dansgólfið :)

HP

1 comment:

  1. HAhahahaha þú ert dásamleg!!! :) Ég hlakka svo ólýsanlega til að búa aðeins nær þér elskuleg, eins og einu risa HAFI nær!
    Ást og sakn til tunglsins...
    Lára

    ReplyDelete