Ég elska fjallgöngur og er að safna fjallstoppum í frægðarsögur fyrir eldri árin!
Það er sko um að gera að venja ungana snemma við fjallabakteríuna því við viljum jú svo gjarna smita þau af þessum áhuga. Adda Sóley varð reyndar eftir heima hjá ömmu og afa í dag enda full ung en samt aðeins of stór í fjall dagsins.
Ofboðslega kát á toppi Miðfells í Biskupstungum.
Menn verða að fá smá mömmu knús í gönguferðum
Mamman ánægð með okkur eftir 7 km göngu og ca.bát 500 metra hækkun!
HP
Vissi ekki að þið ættuð Miðfell þarna í tungunum, verð kannski að tölta þangað einhvern daginn :) ...er reyndar búin að einfalda þetta svo mjög að fyrir mér eru þar bara tungnafjöllin og ekkert vesen.
ReplyDeleteKnús til ykkar í tungurnar
kv. Guðný