Saturday, March 30, 2013

Páskar 2013

...núna hefði ég samkvæmt prógramminu átt að liggja bælinu heima hjá henni systur minni á Ísafirði að jafna mig eftir skemmtilegt tjútt okkar systra í gærkvöldi!

Ég er hinsvegar heima að drekka minn tebolla eftir að hafa farið pínu seint að sofa því ég bara varð að klára bolinn á peysunni sem ég er að prjóna!
Í dag hef ég líka ákveðið að hætta að grenja yfir því að ég sé ekki hjá Völu mín á Ísafirði, setja á mig maskara, fara í fína skó og gera eitthvað með hinu uppáhaldsfólkinu mínu :)

Ég hef verið dugleg við að hlaupa þessa vikuna og hef fulla trú á að hlaupaprógrammið mitt sem ég fékk frítt á Runkeeper muni leiða mig í átt að takmarkinu. Ótrúlega sniðugt að þarna er hægt að velja úr alveg trilljón ókeypis æfingaáætlunum eftir hvort þú ert vanur hlaupari eða algjör byrjandi. Ég valdi mér prógramm sem ég taldi henta mér og setti það í símann hjá mér. Síminn minnir mig svo á æfingarnar og útlistar þær nákvæmlega fyrir mér...svo fæ ég sent e-mail um hæl ef ég er að bæta einhverskonar "personal record" varðandi t.d.  hraða, vegalend eða fjölda æfinga á viku.



Ég er orðin húkt á ilmkertum og ákvað að prófa einu sinnu eitthvað annað en Geysis Angantíru- þetta kerti er frá Sóley Organics og ilmar unaðslega .

HP

No comments:

Post a Comment